Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 519
Annað
Fyrirspurn
Síld og Fiskur ehf sækja 11.07.2014 um leyfi fyrir breytingum innanhúss og stækkun á tæknirými á 3.hæð, samkvæmt teikningum Ásmunds Sigvaldasonar dagsettar 10.07.2014.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 3. mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 og 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt. Samþykktin nær ekki til flettiskiltis, sem vísað er til umsagnar Vegagerðarinnar.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120260 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030046
Síðasta markaðsverð
26.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 124 m² · 15.07.2016
Kaupskrá 3 eignir
26.000.000 kr. 15.07.2016
Atvinnuhúsnæði · 124 m² · bygg. 1977 · HMS
60.000.000 kr. 31.12.2013
Atvinnuhúsnæði · 397 m² · bygg. 1977 · HMS
8.000.000 kr. 26.04.2010
Atvinnuhúsnæði · 103 m² · bygg. 1977 · HMS
Deiliskipulag
Deiliskipulag iðnaðarhverfis austan Reykjavíkurvegar
Samþykkt 05.03.1985 · Deiliskipulag. Nýtt DSK