Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 501
Annað
Fyrirspurn
Þjóðskrá hefur gert viðvart um að verið sé að reyna að flytja lögheimili að Glitvöllum 18, en mannvirkið er skráð á bst. 2 og mst 1. Ekki hefur reynst unnt að gefa út fokheldisvottorð þar sem vantað hefur utanhússklæðningu að hluta þar sem þetta er timburhús. Síðustu 2 úttektum hefur verið synjað.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir eiganda og byggingarstjóra á að lögheimilisskráning er ekki heimil nema fokheldisúttekt hafi farið fram og búseta ekki heimil nema öryggisúttekt hafi farið fram.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204297 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085242
Deiliskipulag
Deiliskipulag Valla, 5. áfangi
Samþykkt 18.04.2006 · Deiliskipulag. Nýtt DSK