Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 dögum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð frá 1. fundi Hverfisráðs Stokkseyrar, sem haldinn var 21. maí sl, lögð fram, þar sem tilteknum málum er vísað til sveitarfélagsins. Einnig er lagt fram minnisblað Ungmennafélags Stokkseyrar, dags. 11. apríl 2026.
Svar

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarráð þakkar hverfisráði Stokkseyrar fyrir ítarlega fundargerð frá 21. maí sl. og felur bæjarritara að vísa erindum hennar til viðeigandi fagsviða til umfjöllunar og eftirfylgni. Lagt er til að bæjarfulltrúar í hverfisráðum fylgi málefnum eftir.

Í fundargerðinni er m.a. óskað eftir úrbótum er varða umferðaröryggi (hraðakstur, merkingar, hraðahindranir og gangbrautir), viðhaldi gatna og gönguleiða. Auk þess er óskað eftir að hlúð verði að umhverfismálum, óskað eftir meiri rækt við græn svæði og tiltekt sem og upplýsingum um framvindu fráveitumála. Enn fremur er óska eftir bættum frístundasamgöngum og aðgengi barna að þeim, upplýsingum um nýtingu og viðgerðir opinberra mannvirkja (m.a. Stjörnusteina og íþróttahúss), auknum stuðningi við viðburði og frístundastarf. Að síðustu var óskað eftir upplýsingum um skipulagsmál og skólaþing að hausti.

Bæjarráð leggur áherslu á að erindin verði tekin til efnislegrar skoðunar og óskað er eftir að niðurstöður og viðbrögð liggi fyrir eftir því sem við á. Samþykkt