Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 173
Annað
Fyrirspurn
María Björk Gunnarsdóttir hönnuður fyrir hönd Eimskip Ísland ehf. sækir um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði. Helstu stærðir eru; 1.508,2m² og 7.279,0m³. Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirliti Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt

800 Selfoss
Landnúmer: 228410 → skrá.is
Hnitnúmer: 10130204