Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Teknar eru fyrir beiðnir foreldrafélags Vallaskóla og nemenda í Stekkjaskóla um að sveitarfélagið muni bjóða upp á skólabúðir fyrir börn í sveitarfélaginu.
Svar

Lögð fram beiðni foreldrafélags Vallaskóla og nemenda í Stekkjaskóla um að sveitarfélagið bjóði upp á skólabúðir fyrir börn í sveitarfélaginu.

Bæjarráð felur sviðstjóra fjölskyldusviðs að útbúa minnisblað um mögulega valkosti og kostnað fyrir grunnskóla Árborgar er varðar ferðir með gistingu eða í skólabúðir fyrir einn árgang. Minnisblað verði lagt fyrir bæjarráð. Samþykkt