Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags Árborgar fyrir miðsvæði M6 er gert ráð fyrir að heimild sé fyrir verslunar -og þjónustutengdum rekstri innan svæðisins en þó með þeim fyrirvara að tekið sé til viðkomandi reksturs innan deiliskipulags og/eða með grenndarkynningu innan hverfisins. Ekkert deiliskipulag er í gildi sem tekur til lóðarinnar og mælist því byggingarfulltrúi til þess að framlagðar umsagnarbeiðnir er varðar útgáfur starfs- og rekstrarleyfis fyrir starfseminni verður send til grenndarkynningar innan hverfisins í takt við stefnumörkun aðalskipulags. Fornsenda jákvæðrar umsagnar byggingarfulltrúa er niðurstaða grenndarkynningar. Komi fram athugasemdir við kynningu málsins skal það tekið til umfjöllunar í skipulagsnefnd Árborgar. Skipulagsdeild annast grenndarkynningu málsins. Samþykkt