Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 168
Annað
Fyrirspurn
Minnisblað deildarstjóra frístundaþjónustu fyrir hönd spretthóps um frístundaakstur, dags. 13. apríl.
Svar

Bæjarráð er sammála um að farið verði í endurskipulagningu frístundaaksturs með það að markmiði að bæta aðgengi, auka öryggi barna og tryggja betri samræmingu við daglegt skipulag skóla-, frístunda- og íþróttastarfs. Bæjarráð vísar verkefninu til frekari vinnslu innan fjölskyldusviðs. Tillaga að endurskipulagningu, ásamt kostnaðargreiningu, verði lögð fyrir bæjarráð, fræðslu- og frístundanefnd og velferðarnefnd. Tillagan komi fram sem fyrst til að breytingar geti tekið gildi á nýju skólaári. Bæjarráð skal vísa tillögunum til umsagnar í hverfisráðum sveitarfélagsins.