Fyrirspurn
Erindi frá Umboðsmanni barna dags. 13. apríl um sveitarstjórnarkosningar og lýðræðislega þátttöku barna. Þar kemur fram að umboðsmaður barna hvetur sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga til þess að standa fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla sveitarfélagsins.
Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu.