Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 klukkutímum síðan.
Bæjarráð nr. 167
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá Þríþrautasambandi Íslands, dags. 7. apríl, þar sem óskað er eftir heimild til að halda þríþrautakeppni á Selfossi, sunnudaginn 9. ágúst. Um er að ræða sprettþraut sem hefst á 750 metra sundi í Sundhöllinni, því næst er hjólað (sjá kort) og endar keppnin á 5 km hlaupi og tekur keppnin að hámarki 2,5 klukkutíma. Einnig er sótt um leyfi til að nota Sundhöll Selfoss fyrir keppnina (sundhluti keppninnar í lauginni stendur yfir að hámarki til kl. 10:20.
Svar

Bæjarráð samþykkir að veita Þríþrautarsambandi Íslands afnot af Sundhöll Selfoss vegna þríþrautarkeppni á Selfossi þann 9. ágúst nk. Um er að ræða aðstöðu í útiklefum fyrir keppendur og aðgang í Sundhöll í keppninni. Þríþrautarsambandinu er bent á að senda þarf beiðni á Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar vegna afnota af landi og götum sveitarfélagsins. Samþykkt