Bæjarstjóri leggur fram svör við fyrirspurn um kostun auglýsinga á samfélagsmiðli bæjarstjóra. Fram kom að um ranga skráningu hefði verið að ræða inn á persónulegri facebooksíðu bæjarstjóra sem nú væri búið að leiðrétta. Allar greiðslur fyrir auglýsingar á umræddri facebooksíðu hafa verið greiddar persónulega af bæjarstjóra.
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn og staðfestir að sveitarfélagið greiði enga reikninga vegna auglýsinga á samfélagsmiðli bæjarstjóra.