Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista, dags. 7. apríl um auglýsingaskjá í anddyri Sundhallar Selfoss.
Svar

Bæjarstjóri leggur fram svör við fyrirspurnum um auglýsingaskjá í anddyri Sundhallar Selfoss. Fram kom að búið væri að slökkva á skjánum þar sem ekki lá fyrir formlegur samningur um uppsetningu og notkun á skjánum. Einnig kom fram að til skoðunar sé að setja vinnureglur um birtingu auglýsinga í almenningsrýmum í fasteignum í eigu sveitarfélagsins.