Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 168
Annað
Fyrirspurn
Jón Grétar Magnússon aðalhönnurður fyrir hönd Mílu hf. sækir um leyfi til að setja upp spennistöð á lóðinni ásamt fjarskiptamastri. Helstu stærðir eru 9 m2 og 26,3 m3
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.Samþykkt