Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 klukkutímum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 5. fundi starfshóps um frekari uppbyggingu leik- og grunnskóla í Sveitarfélaginu Árborg frá 23. febrúar sl. liður 2. Fjöldi barna í Sveitarfélaginu Árborg - útlistun úr Íbúasýn 23.2.2026. Starfshópur leggur til við bæjarráð að hafinn verði undirbúningur að fjórða grunnskóla á Selfossi.
Svar

Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að stofnun næsta grunnskóla í Árborg. Starfshópi um uppbyggingu leik- og grunnskóla í Árborg verði falið að leiða undirbúningsvinnuna í samráði við fulltrúa fjölskyldusviðs og mannvirkja- og umhverfissviðs. Samþykkt