Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, taka til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, bæjarfulltrúar B-lista og S-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Arnar Freyr Ólafsson, f.h. beggja fulltrúa B-lista, gera grein atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Fjárhagsstaða Árborgar er að þyngjast á ný í kjölfar þess að viðvarandi taprekstur er á A sjóði Sveitarfélagsins amk. 600 mkr. á árinu 2025.
Ljóst er að núverandi meirihluti finnur ekki aðrar lausnir en að auka við skuldsetningu sveitarfélagsins sem koma fram í fjölmörgum viðaukum undanfarin misseri. Ekki er séð fyrir endann á taprekstri fyrr en í fyrsta lagi 2028.
Á þeim tímapunkti verður nýr meirihluti starfandi og er því ærið verkefni að vinda ofan af hallarekstri núverandi meirihluta sem hefur þó skattlagt
íbúa sveitarfélagsins fram úr hófi á kjörtímabilinu.
Við munum því sitja hjá í afgreiðslu allra fjármögnunarsamninga sem eru samtals 2.313 mkr. og eru til afreiðslu á fundi Bæjarstjórnar í dag."