Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Aðilar sem vísað er í
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 167
Annað
Fyrirspurn
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Fagralands ehf. sækir um leyfi til að byggja Parhús. Helstu stærðir eru; 302,8m² og 1211,6m³. Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt