Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Bæjarráð nr. 158
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 21. janúar, þar sem óskað er eftir umsögn um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar nk.
Svar

Um leið og bæjarráð fagnar því hvað framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá hafa gengið vel, lýsir það yfir miklum vonbrigðum að í drögum að samgönguáætlun sé verið að fresta öðrum stórum samgönguverkefnum á Suðurlandi.

Í drögum að samgönguáætlun 2026-2040 er mörg jákvæð markmið og verkefni sem auka umferðaröryggi og ættu að bæta samgöngur á Íslandi. Bæjarráð vill hins vegar benda á að mikilvægt sé að klára tvöföldun Suðurlandsvegar frá Rauðavatni að Markarfljóti sem fyrst. Það eru því veruleg vonbrigði að framkvæmdir við færslu Suðurlandsvegar við Hveragerði, vegaframkvæmdir í uppsveitum Árnessýslu við stærstu ferðamannastaði Íslands og styrkingu Þrengslavegar að Þorlákshöfn og Eyrarbakka sé seinkað líkt og drög að samgönguáætlun gefa til kynna. Uppbygging Þrengslavegar, Óseyrarbrúar og Eyrarbakkavegar að Selfossi er orðin aðkallandi enda eykst umferð, bæði fólksbíla og þungaumferðar um vegina árlega.

Bráðabirgðahringtorg á Suðurlandsvegi við Biskupstungnabraut er skammtímalausn og vill bæjarráð ítreka mikilvægi þess að farið verði strax í uppbyggingu mislægra gatnamóta líkt og gert er ráð fyrir í skipulagi. Framkvæmdir eru á svæðinu næstu árin og hagkvæmara að klára allar framkvæmdir tengdum nýrri brú samhliða en ekki seinna með tilheyrandi röskun á umferð.

Göngubrú meðfram núverandi Ölfusárbrú er verkefni sem hefur verið í umræðunni til fjölda ára og bæjarráði finnst vanta inn í drög að samgönguáætlun. Aukin umferð um Ölfusárbrú hefur skapað hættu fyrir gangandi vegfarendur og fyrirséð að hún mun ekki minnka á komandi árum þrátt fyrir byggingu nýrrar brúar. Öryggi gangandi vegfarenda er ofarlega í huga bæjarráðs. Mikilvægt að ríkisvaldið nýti tækifærið, uppfæri teikningar af stakstæðri göngubrú yfir Ölfusá og setji inn í samgönguáætlun.

Einnig bendir bæjarráð á mikilvægi þess að fjármagn til framkvæmda við stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn sé tryggt áfram á næstu árum en ekki frestað til ársins 2029. Uppbygging hafnarinnar er ekki bara mikilvæg uppbyggingu og starfsemi á Suðurlandi heldur Íslandi sem heild. Tryggir m.a. öflugri sjóflutninga, bætta samkeppni og með því uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni. Samþykkt