Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 27. febrúar 2026, um breytingar á húsnæði leikskólans Árbæjar og frekari uppbyggingu á húsnæði fyrir leikskóla við Norðurhóla 5.
Svar

Sviðstjóri fjölskyldusviðs fer yfir tillögu þess efnis að unnin verði ítarlegri greining á fyrirhuguðum breytingum á húsnæði leikskólans Árbæjar í samstarfi við starfshóp um leik- og grunnskóla ásamt rekstraraðilum. Bæjarráð samþykkir tillöguna og að hluti þess fjármagns, kr. 8.000.000- sem var áætlað í breytingar í Árbæ verði nýtt til að bæta innra skipulag leikskólans.

Bæjarráð samþykkir einnig að færa fjármagn sem áætlað var í stækkun á leikskólanum Árbæ innan fjárfestingaráætlunar yfir á framkvæmdir við Norðurhóla 5 þar sem fyrirhugað er að færanlegar kennslustofur við Stekkjarskóla verði færðar í sumar. Aukið fjármagn verði nýtt til að bæta við einni færanlegri einingu við húsnæðið. Þá verði fjölgun um tvær deildir og í heildina sex deilda leikskóli að Norðurhólum 5 frá og með haustinu 2026. Sviðstjóra fjölskyldusviðs er falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við mannvirkja- og umhverfissvið. SamþykktHeiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs fer af fundinum kl.8:41