Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 154
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 22. fundi velferðarnefndar frá 2. desember, liður 4. Styrkbeiðni - rekstur Sigurhæða. Lagt er fyrir beiðni Sigurhæða um fjárhagslegan styrk fyrir komandi starfsár 2026.
Velferðarnefnd þakkar erindið og vill koma á framfæri þökkum til Sigurhæða fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf á Suðurlandi fyrir þolendur kynbundins ofbeldis. Áframhaldandi stuðningur sveitarfélagsins við rekstur Sigurhæða er gríðarlega mikilvægur og Velferðarnefnd vísar málinu áfram til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.
Svar

Bæjarráð samþykkir að styrkja rekstur Sigurhæða um kr. 2.500.000- árið 2026 sem er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun. Starfsemi Sigurhæða er mikilvæg samfélaginu og fjölmargir íbúar sveitarfélagsins nýta sér þjónustu þeirra í hverjum mánuði. Einnig kom fram að Sveitarfélagið Árborg sé að ganga frá tímabundnum samningi við Sigurhæðir um afnot af viðtalsrýmum vegna starfsemi velferðaþjónustu Árborgar. Samþykkt