Fyrirspurn
Tillaga frá 52. fundi skipulagsnefndar frá 5. nóvember, liður 5. Deiliskipulagsbreyting - Byggðarhorn 54 (Litla Kot).
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi búgarðabyggðar, Byggðarhorns Búgarðar. Breytingin nær til lóðar númer 54 sem hefur fengið heitið Litla Kot. Lóðinni verður skipt í tvær lóðir, Litla Kot I og Litla Kot II. Aðkoma að lóðum er frá hreimreið, sem tengjast Byggðarhornsvegi (3081) sem er héraðsvegur. Nú þegar er búið að byggja íbúðarhús á lóðinni og mun það tilheyra Litla Koti I. Á hvorri lóð fyrir sig er heimilt að byggja íbúðarhús og útihús. Heildarbyggingarmagn lóðar fyrir breytingu er 800 m2 fyrir íbúðarhús og 1200 m2 fyrir útihús og verður samanlagt heildarbyggingarmagn beggja lóða eftir breytingu 800 m2 fyrir íbúðarhús og 1000 m2 fyrir útihús.
Skipulagsnefnd mælist til þess að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi og verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum á svæðinu auk þess sem leitað verði umsagna.