Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 63
Annað
Fyrirspurn
Á 145. fundi bæjarrás var mótatkvæði við afgreiðslu málsins er það því hér lagt fram til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Samstarf Sundhallar Selfoss og World Class Minniblað frá deildarstjóra frístundaþjónustu og forstöðumanni sundlauga, dags. 2. október vegna samstarfs Sundhallar Selfoss og World Class. Formaður leggur til við bæjarráð að samstarfssamningur Árborgar og World Class frá 2. október 2015 verði uppfærður í samræmi við aukið framlag World Class við þrif í Sundhöll Selfoss. Einnig að samhliða tilfærslu á verkefnum til World Class verði opnunartími Sundhallar Selfoss lengdur á mánudögum til fimmtudags um 60 mínútur. Lengdur opnunartími taki gildi 24. nóvember 2025 og verði þá frá kl. 06:30-22:00 mánudaga til fimmtudags en óbreyttur á föstudögum og um helgar. Engin viðbótarkostnaður hlýst af breytingunum fyrir sveitarfélagið.
Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista leggja fram tillögu um að málinu verði frestað. Tillaga um frestun er borin upp til atkvæða og felld með tveimur atkvæðum fulltrúa D- og Á lista en samþykkt af fulltrúa B-lista.
Tillaga formanns borin upp til atkvæða og samþykkt með tveimur atkvæðum D- og Á lista en fram kom mótatkvæði frá fulltrúa B-lista. Málinu er því vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar Árborgar.
Fulltrúar B- og S lista leggja fram eftirfarandi bókun: Undirrituð óska eftir upplýsingum um kostnað sem fellur til miðað við að opnunartími Sundhallar Selfoss sé aukinn annars vegar frá kl. 21:00 til 21:30 og hins vegar til kl. 22:00. Eins og tillagan liggur fyrir vantar skýrari útreikninga á kostnaði. Undirrituð taka fram að þau eru ekki mótfallin lengingu opnunartímans en mikilvægt er að fyrir liggi nákvæm kostnaðargreining til þess að tryggja að ábyrg fjármálastjórnun sé ávallt höfð að leiðarljósi. Einnig óska undirrituð eftir að fá útreikninga á lengingu opnunartíma í sundlaug Stokkseyrar miðað við sem nú er.
Arnar Freyr Ólafsson B-lista Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista
Fulltrúar D- og Á lista leggja fram eftirfarandi bókun: Enginn kostnaðarauki felst í breytingunni vegna betri samninga við World Class. Þá er fyrirhugað að lengja opnunartíma í sundlaug Stokkseyrar í fjárhagsáætlunargerð 2026.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Björgvin Guðni Sigurðsson, S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Lagt er til við bæjarstjórn að samstarfssamningur Árborgar og World Class frá 2. október 2015 verði uppfærður í samræmi við aukið framlag World Class vegna þrifa í Sundhöll Selfoss. Samhliða tilfærslu á verkefnum til World Class verði opnunartími Sundhallar Selfoss lengdur á mánudögum til fimmtudags um 60 mínútur. Lengdur opnunartími taki gildi 1. desember 2025 og verði þá frá kl. 06:30-22:00 mánudaga til fimmtudaga en óbreyttur á föstudögum og um helgar. Engin viðbótarkostnaður umfram samþykkta fjárhagsáætlun hlýst af breytingunum fyrir sveitarfélagið.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 8 atkvæðum D-lista og Á-lista og atkvæði Ellýjar Tómsdóttur, B-lista. Bæjarfulltrúar S-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista sitja hjá.

Ellý Tómasdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu.