Fyrirspurn
Bókun 23. fundar velferðarnefndar frá 27. janúar sl. liður 5.
Samstarfs- og nýsköpunarstyrkir til íslenskunáms innflytjenda.
Mennta- og barnamálaráðherra hefur ákveðið að veita umsókninni "Virkni og íslenskunám einangraðra kvenna af erlendum uppruna" styrk að fjárhæð 1.436.000 kr. til að framkvæma verkefnahugmyndina og gera afurðina aðgengilega til að flýta fyrir umbótum á vettvangi íslenskunnar.
Velferðarnefnd lýsir yfir ánægju sinni með styrkveitingu ríkisins til verkefnisins Virkni og íslenskunám einangraðra kvenna af erlendum uppruna. Nefndin telur mikilvægt að einstaklingar af erlendum uppruna fái aukin tækifæri til að taka þátt í íslensku samfélagi og með því aukar líkur á samfélagslegri þátttöku kvennanna.