Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 159
Annað
Fyrirspurn
Heimir Freyr Hauksson hönnuður fyrir hönd Pétur og Bjarki ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýli. Helstu stærðir eru; 187,5m² og 740,8m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt

825 Stokkseyri
Landnúmer: 196186 → skrá.is
Hnitnúmer: 10003866