Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Annað
Fyrirspurn
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja lántökur Brunavarna Árnessýslu vegna byggingar slökkvistöðvar á Flúðum og kaupa á tankbíl, í samræmi bókun af 36. fundi stjórnar Brunavarna Árnessýslu, sem haldinn var 30. apríl 2026. Lagt er til að bæjarstjóra verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánssamninga vegna lánsins.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir, samhljóða með 11 atkvæðum, hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Brunavarna Árnessýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 98.376.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til byggingar nýrrar slökkvistöðvar á Flúðum og vegna kaupa ná nýrri slökkvibifreið sem staðsett verður í Reykholti. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Bæjarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Árnessýslu til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250483-5359, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Sveitarfélagsins Árborgar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.