Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 150
Annað
Fyrirspurn
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Hátak ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 229,1 m² og 817,2 m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa auk athugasemda eldvarnaeftirlits Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.Samþykkt