Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Minnisblað sviðstjóra, mannvirkja- og umhverfissviðs, dags. 25. mars, vegna húsnæðisbreytinga í leikskólum.
Svar

Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kom inn á fundinn og fylgdi eftir minnisblaði um stöðu leikskólamála í Árborg. Fram kom tillaga um að fresta flutningi færanlegra kennslustofa frá Stekkjarskóla yfir á lóð Norðurhóla 5 fram á sumarið 2027 þegar ný viðbygging við Jötunheima opnar. Sumarið 2026 verði húsnæði Jötunheima við Stekkjaskóla lítillega breytt með tilfærslu á rýmum fyrir hreyfisal, listasmiðjur og þvottahús. Tillagan hefur ekki í för með sér breytingar á þegar samþykktum fjölda leikskólaplássa haustið 2026. Undirbúningur og upphaf framkvæmda við þriðja áfanga Stekkjaskóla helst óbreyttur.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðstjóra að fylgja málinu eftir. SamþykktHeiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs fer af fundinum kl.8:35