Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 63
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 51. fundi skipulagsnefndar frá 8. október sl. liður 3. Búgarðabyggð í landi Byggðarhorns, lóðir 7 og 56 - Deiliskipulagsbreyting.
Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Byggðarhorns Búgarðabyggðar vegna uppskiptingar/fjölgunar lóða. Tillagan var auglýst frá 17. júlí - 28. ágúst 2025. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Náttúruverndarstofnun og Vegagerðinni. Athugasemdir og ábendingar eru settar fram í umsögn Vegagerðarinnar þar sem meðal annars er talað um að fyrirhugaðar breytingar á skipulagi svæðisins uppfylli ekki lágmarkskröfur skv. veghönnunarreglum og getur stofnunin því ekki fallist á tillöguna. Einnig eru ábendingar settar fram í umsögn Náttúruverndarstofnun þar sem áhersla er lögð á að fuglalíf og búsvæði þess verði kortlögð og metin við frekari skipulagsvinnu. Ein athugasemd barst frá Stefáni Halldórssyni lóðarhafa á svæðinu, þar sem hann m.a. bendir á skort á viðhaldi vegar, auk þessa sem álag á veginn hefur aukist töluvert með fjölgun lóða. Þá beinir hann því til sveitarfélagsins að hefja hið fyrsta lagningu á sverari stofnlögn hitaveitu, til að anna svæði betur, auk þess að gera varanlegar úrbætur á vegi.
Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna þar sem aðkomum að lóðum er ekki fjölgað og núverandi afleggjarar samnýttir. Ekki kemur því til þess að um breytingu á fjölda afleggjara sé að ræða frá núgildandi deiliskipulagi svæðisins. Að mati nefndarinnar er ekki ástæða til að kortleggja svæðið sérstaklega m.t.t. fuglalífs á grundvelli framlagðrar deiliskipulagsbreytingar enda felur hún ekki í sér verulega þéttingu byggðar og áfram er um dreifða byggð að ræða á skilgreindu landbúnaðarlandi. Varðandi athugasemdir íbúa tekur skipulagsnefnd undir áhyggjur er varðar vegamál svæðisins. Mælist nefndin til þess við bæjarstjórn að Vegagerðin verði hvött til aðgerða vegna viðhalds héraðsvegar um svæðið. Varðandi athugasemd er varðar uppbyggingu veitna bendir nefndin á að gera megi ráð fyrir eðlilegum viðhaldi veitna á svæðinu samhliða uppbyggingu í samræmi við umfang og þörf. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Bæjarstjórn tekur undir með skipulagsnefnd að brugðist hafi verið við umsögnum með fullnægjandi hætti.
Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn tekur undir áhyggjur íbúa af vegamálum svæðisins og hvetur Vegagerðina til aðgerða vegna viðhalds héraðsvegar um svæðið.