Byggingarfulltrúi sendi lóðarhafa bréf dags. 31.10.2024 þar sem segir m.a:
Byggingarfulltrúi fer fram á að gerð verði fullnægjandi grein fyrir framkvæmdinni.
Ef ekki verði gerðar viðeigandi ráðstafanir fyrir 22.11.2024 mun byggingarfulltrúi í framhaldinu beita aðgerðum sem m.a eru tilgreindar í gr 2.9.2. í byggingarreglugerð 112/2012, þ.e. dagsektum sem geta numið allt að 500.000 kr.
Lóðarhafi hefur ekki haft samband né gert athugasemdir við stöðuskoðun byggingarfulltrúa ásamt því að staða málsins hefur ekki verið breytt.
Byggingarfulltrúi fer fram á að gámur sé fjarlægður, byggingarstjóri sé skráður á verkið ásamt iðnmeisturum og að öryggisúttekt fari fram. Ef ekki verður brugðist við framangreindu fyrir 6.janúar 2025 mun verða lagðar á dagsektir 10.000kr. Samþykkt