Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 49
Annað
Fyrirspurn
Síðari umræða.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja fjárhagsáætlun 2025-2028.
Svar

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Ellý Tómasdóttir, B-lista.

Fundarhlé er tekið kl. 18:14.
Fundi fram haldið kl. 18:19.

Fundarhlé er tekið kl. 18:43.
Fundi fram haldið kl. 18:52.

Fjárhagsáætlun 2024 og 3ja ára áætlun eru bornar undir atkvæði og samþykktar með 7 atkvæðum, 6 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Bæjarfulltrúar B-lista og S-lista sitja hjá.

Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:
Eftir krefjandi rekstrarár, erfiðar aðgerðir og endurskipulagningu í rekstri sveitarfélagsins er sá viðsnúningur sem átt hefur sér stað á fjárhag Sveitarfélagsins Árborgar síðustu tvö ár ekkert minna en kraftaverk!
Það er mikilvægt að rifja upp þann tímapunkt vorið 2023 þegar bæjarfulltrúar voru boðaðir á fund með ráðgjöfum og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga en á þessum tíma var staða sveitarfélagsins grafalvarleg, ekkert handbært fé og lítill sem enginn aðgangur að lánsfé enda sveitarfélagið þá nýbúið að skila ársreikningi fyrir árið 2022 og komið yfir 150% viðmiðið. Í framhaldinu skrifuðu allir bæjarfulltrúar undir skjal þar sem þeir staðfestu að álag yrði lagt á íbúa sveitarfélagsins Árborgar til eins árs, enda ekki hægt að sækja um slíka heimild nema eitt ár í senn!
Það var öllum ljóst að mikilvægt væri að staðfesta það að álag yrði lagt á! fyrst og fremst til að sýna fjárfestum og lánastofnunum fram á að þannig myndum við auka framlegð og bæta reksturinn samhliða fjölgun íbúa. Við vitum það jú öll að það er erfitt að sækja um lán ef þú ert yfir veðsettur.
Þetta sumar náðum við að hækka yfirdrátt til að eiga fyrir launum, við náðum að veðsetja eignir í söluferli til að eiga fyrir launum, við sóttum 500 milljónir. kr. á markaði auk þess sem Lánasjóðurinn kom inn með viðbótarlán um haustið. Á þessum tímapunkti vorum við bundin í risa framkvæmd við Stekkjaskóla, áfanga tvö svo útgjöld voru vel rúmlega það sem kallast hefðbundin rekstrargjöld.
Það er hins vegar alveg ljóst að heimild til að setja álag á íbúa fékkst aðeins til eins árs og var umræða okkar bæjarfulltrúa að álagið fær af um leið og aðstæður leyfðu. Það voru mér því mikil vonbrigði eftir að sex mánaða uppgjör ársins 2024 lá fyrir, að ekki væri farið í það af fullum þunga að aflétta álagi.
Það má alveg spyrja sig hvort það sé löglegt að halda álagi á íbúa árið 2024 til streitu þegar sveitarfélagið er sannarlega komið undir 150% skuldviðmið A og B hluta skv. jafnvægis- og skuldareglu sveitarstjórnarlaga.
Kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á fjárhag sveitarfélags og samkvæmt 63.gr sveitarstjórnalaga er óheimilt að víkja frá fjárhagsáætlun en það á þó ekki að koma í veg fyrir sveigjanleika í fjármálastjórnun sveitarfélaga eða því að bæjarstjórn geti brugðist við nýjum forsendum.
Það er allra hagur að rekstrarafkoma sveitarfélagsins sé jákvæð og traust en þannig veitum við íbúum sem allra besta þjónustu en á sama tíma viljum við að álögum á íbúa sé haldið í lágmarki eins og hægt er hverju sinni!
Ég samþykki fjárhagsáætlun ársins 2025, en lýsi um leið yfir miklum vonbrigðum með það að álagi hafi ekki verið aflétt strax í lok sumars þegar ljóst var að rekstrarafkoma Sveitarfélagsins er langt umfram áætlanir.
Að lokum vill ég þakka öllu starfsfólki og nefndarfólki sveitarfélagsins fyrir frábæra vinnu við gerð fjárhagsáætlunar en sú vinna sem á sér stað við gerð slíkrar áætlunar er yfirgripsmikil nákvæmnisvinna sem er ekki sjálfgefin.

Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarfulltrúi D-lista

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur fram eftirfarandi bókun:

Í ljósi þessa að jöfnuður er að nást í fjárhag Sveitarfélagsins þá er ljóst að innheimta á viðbótarútsvari frá Íbúum Árborgar vegna tekjuársins 2025 er ekki lengur heimil eins og fram kom í bréfi frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga til bæjarstjórnar á haustmánuðum 2024.
Á árinu 2023 var skuldaviðmið sveitarfélagsins komið undir 150% lögboðið hámark, langt á undan áætlun, og því ljóst að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 - 2027 sem tók mið af ráðgjöf KPMG og fulltrúum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga voru rangar sem leiddu til mjög íþyngjandi aðgerða sem m.a. fólst í álagningu á útsvar íbúa sveitarfélagsins vegna tekjuársins 2024 og kemur til greiðslu 1. júní 2025.
Það er umhugsunarefni að íbúar í Sveitarfélaginu Árborg skyldu vera einu íbúarnir sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga gekk jafn hart gegn, og raun varð á, með kröfu á álagningu viðbótarútsvars, þrátt fyrir að þriðjungur sveitarfélaga í landinu væru yfir 150% skuldaviðmiðinu.
Í því ljósi leggja undirritaðir bæjarfulltrúar til að horfið verði alfarið frá innheimtu á viðbótarútsvari frá íbúum fyrir árið 2024 og fundin leið, í samstarfi við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, til að endurgreiða Jöfnunarsjóði sveitarfélaga viðbótarframlagið á næstu 5 ? 10 árum sem greitt var til Sveitarfélagsins Árborgar 2024, þannig að ekki þurfi að koma til innheimtu þess þann 1. júní 2025.
Undirritaðir bæjarfulltrúar hvetja meirihluta bæjarstjórnar að leita skynsamlegra leiða til aukinnar hagræðingar og skilvirkni í rekstrinum. Það eru því enn á ný mikil vonbrigði að laun formanns bæjarráðs hafi ekki verið lækkuð til samræmis við það sem þau voru áður og eins og til stóð í fjárhagsáætlunarvinnu ársins 2024. Það orkar því tvímælis og sætir furðu að finnast í lagi að hafa haft dagdvölina Árblik lokaða í sumarfríi 2024 í sparnaðarskyni en finnast áfram sanngjarnt að greiða formanni bæjarráðs 42% af þingfarakaupi í stað 21% eins og var þegar meirihluti D-lista komst til valda.
Undirritaðir bæjarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Undirrituð vilja koma á framfæri þakklæti til starfsfólks sveitarfélagsins fyrir þeirra mikilsverða framlag við fjárhagsáætlunargerðina og margar góðar tillögur til þess að bæta rekstur Svf. Árborgar.

Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi B-lista
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi B-lista
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi S-lista

Bragi Bjarnason, D-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Hér liggur fyrir samþykkt fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árin 2025-2028. Það er bæjarfulltrúum D- og Á-lista gleðilegt að geta tekið af viðbótarálag á útsvar íbúa ári fyrr en áætlað hafði verið. Í fjárhagsáætluninni er lögð áhersla á að tryggja grunnþjónustu við íbúa á öllum aldri og leitast við að forgangsraða velferð.
Þrátt fyrir góðan árangur á árinu verðum við áfram að gæta aðhalds í rekstrinum, forgangsraða og selja eignir til að viðhalda traustum rekstri til framtíðar. Árangurinn sýnir um leið að stefna bæjarstjórnar er að virka. Við viljum standa við loforðið að snúa rekstri sveitarfélagsins til betri vegar en um leið lækka álögur á íbúa í samræmi við það svigrúm sem rekstur sveitarfélagsins leyfir.
Bæjarfulltrúar D- og Á-lista sem skipa meirihluta bæjarstjórnar vilja þakka öllum þeim sem hafa komið að vinnunni og lagt ómetanlegt framlag til verksins. Gleðjumst yfir áfanganum en höldum fókus á stefnuna að ná meiri árangri fyrir Árborg okkar allra.

Bragi Bjarnason, D-lista
Kjartan Björnsson, D-lista
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista
Helga Lind Pálsdóttir, D-lista
Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista