Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 137
Annað
Fyrirspurn
Dagný Sif Jónsdóttir tilkynnir um samþykki nágranna að Bleikjulæk 10 fyrir að reisa skjólvegg allt að 1,8 m að hæð nær lóðarmörkum en 3 m. Einnig er tilkynnt um uppsetningu skjólveggja allt að 1,8 m að hæð vestan húss aðliggjandi sameiginlegs aðkomustígs sem kvöð er um vegna aðkomu að baklóðum vestan húss.
Svar

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppsetningu skjólveggjar aðliggjandi lóð nr. 10 skv. samkomulagi nágranna enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. Skjólveggur við aðkomustíg er um 2 m frá lóðamörkum og fellur því undir undanþáguákvæði reglugerðar.
Afgreiðslu- og umsýslugjald fyrir smáhýsi, skjólveggi og sólpalla er kr. 22.000,- og verður innheimt af fjármálasviði Árborgar.
Samþykkt

800 Selfoss
Landnúmer: 206648 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116943