Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 klukkutímum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Bókun frá 53. fundi framkvæmda- og veitustjórnar frá 24. mars. sl. liður 6. Staða orkuöflunar.
Farið yfir stöðu við borun á vinnsluholu SE 47 hjá Selfossveitum. Veitustjóri fór yfir borsögu á SE 47 og felur nefndin veitustjóra að vinna að áframhaldandi borun á svæðinu og kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum og leggja fyrir sem fyrst.
Svar

Bæjarráð samþykkir tillögu veitustjóra Selfossveitna að haldið verði áfram orkuöflun á svæðinu fyrir aftan SS á Selfossi. Boruð verði ný hola í stað þeirrar sem skemmdist því vísbendingar eru um að talsvert magn af heitu vatni sé til staðar.

Bæjarráð felur eigna- og veitunefnd að taka tillit til aukins kostnaðar við orkuöflun í næstu endurskoðun á fjárfestingaráætlun 2026 og leggja fram tillögur fyrir bæjarráð um hvernig fjármögnun verði háttað.Samþykkt