Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 51
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 38. fundi skipulagsnefndar frá 18. desember sl. liður 1. Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar II. á ASK 2024. Tillaga aðalskipulagsbreytingar Árborgar 2020-2036. Breytingar II, voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar eftir auglýsingu (skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010), sem lá frammi frá 31.10.2024 til 12.12.2024. Um er að ræða breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036, á Selfossi. Austurvestur flugbrautin á Selfossflugvelli er stytt svo hún sé aðeins á landi í eigu Sveitarfélagsins Árborgar en ekki á landi í einkaeigu. Sömuleiðis er opna svæðið OP1 minnkað og verður aðeins á landi í eigu sveitarfélagsins. Þéttbýlismörkum Selfoss er breytt til samræmis. Landbúnaðarland L2 er stækkað yfir það svæði sem var opið svæði og flugvöllur. Breytingar eru eftirfarandi: 1. Selfossflugvöllur. Vesturbraut flugvallarins er stytt, tekin er út sá hluti hennar sem er á landi í einkaeigu. Hindranaflötum er breytt til samræmis. 2. Opið svæðið OP1 er minnkað norðan Selfossflugvallar og verður aðeins á landi í eigu sveitarfélagsins. 3. Landbúnaðarsvæði L2 er stækkað yfir það svæði sem var opið svæði og flugvöllur. 4. Þéttbýlismörkum Selfoss er breytt og aðlöguð að breyttri afmörkun Selfossflugvallar og opins svæðis. 5. Kjallarar á Selfossi. Heimilt verður að vera með bílakjallara á Selfossi og gildir það líka um flóðasvæði, en kjallarar á slíkum svæðum skulu uppfylla tiltekin skilyrði. 6. Lóðin Austurvegur 20 verður öll miðsvæði. Í dag er um helmingur hennar samfélagsþjónusta. Að öðru leyti en því sem hér er greint frá gilda skilmálar eldra aðalskipulags, með síðari breytingum. Gerð er breyting á greinargerð og uppdráttum: Gildandi og breyttur aðalskipulagsuppdráttur fyrir Selfoss, í mkv. 1:10.000. Ásamt breyttum uppdrætti fyrir dreifbýli í mkv. 1:50.000. Greinargerð með forsendum og umhverfismatsskýrslu.
Engar athugasemdir bárust frá almenningi. Umsagnir bárust frá Flugklúbbi Selfoss, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Isavia, Minjastofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Vegagerðinni og Veðurstofu Íslands. Í athugasemd Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er gerð athugasemd við að breytingar á stefnu aðalskipulags um landnotkun geti haft áhrif á starfsemi sem þegar er til staðar innan þeirra landnotkunarreita sem skipulagsbreytingar ná til og að Heilbrigðisnefnd sé óheimilt að endurnýja starfsleyfi/skráningu fyrir starfsemina sé hún ekki í samræmi við landnotkun eftir breytingar. Þá er einnig bent á að ekki sé gert grein fyrir því hvenær og hvernig fyrirhugaðar breytingar komi til framkvæmda og hvað gildi fram að því.
Isavia gerir í umsögn sinni athugasemd er varðar styttingu flugbrautar og þeirra áhrifa á möguleika og notkun flugvallarins sem það kann að valda. Flugklúbbur Selfoss mótmælir skipulaginu og telja að það hefti þróun og uppbyggingu Selfossflugvallar ásamt því að möguleikar sveitarfélagsins á tekjuöflun verði að engu, eða minnki verulega.
Veðurstofa Íslands Veðurstofan bendir á varðandi heimild fyrir bílakjöllurum á flóðasvæðum að erfitt getur verið að draga úr tjónmætti flóða með vörnum. Skilvirkasta leiðin til þess að lágmarka tjón af völdum flóða er að beita skipulagsáætlunum til þess að koma í veg fyrir að tjónnæmi samfélagsins aukist (Tinna Þórarinsdóttir o.fl., 2022). Bílakjallara á flóðasvæðum auka tjónnæmi samfélagsins, þrátt fyrir varnir og ákvæði um hæð innkeyrslu og fráveitu. Veðurstofan bendir einnig á í þessu samhengi að þrátt fyrir að ísstíflur og jakahrannir myndist oft á sömu þekktu stöðunum (Emmanuel o.fl., 2019) þá getur ís hlaðist upp á óvæntum stöðum og haft áhrif á vatnshæð. Vatnshæð í flóðum þar sem áhrifa ísstíflna og jakahranna gætir getur því staðbundið orðið óvenju há og talsvert langt yfir vatnshæð þekktra flóða. Erfitt getur verið að taka tillit til þessa óvissuþáttar í hættumati flóða og því vert að hafa hann í huga við skipulag nærri ám sem þekkt er að ísstíflur myndist í.
Skipulagsnefnd telur að athugasemdir Flugklúbbs Selfoss, séu á þá leið að óskir þeirra um að norðurendi flugbrautar verði aftur settur inn á Aðalskipulag eftir samtal við forsvarsmenn Flugklúbbs, þurfi nánari skoðunar við.
Varðandi umsögn Isavia, er bent á að austur/vesturbraut hafi ekki lengur sama vægi til lendinga og flugtaks og norður/suðurbrautin, enda sé hún meginbraut flugvallarins.
Vegna umsagna Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, bendir nefndin á að breytingar á gildandi aðalskipulagi, geti haft í för með sér að núgildandi rekstrarleyfi á sumum stöðum falli úr gildi við breytingu. Það sé eðli breytinga. Varðandi hvenær breytingar taki gildi, þá er það þegar tillagan verður auglýst með gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda.
Vegna umsagnar Veðurstofu Íslands vill nefndin taka fram að nú þegar er í gildi deiliskipulag íbúðabyggðar í Árbakkalandi, og eru uppi áform um byggingu kjallara undir nokkur fjölbýlishús. Staðsetning þeirra húsa er syðst og í norðausturhluta svæðis. Nefndin telur að með skýrum fyrirmælum í deiliskipulagsbreytingu verði gerð krafa um öflugan öryggisbúnað sem veitir út vatni, komi til þess, og þar með takmarki hugsanlegt tjón vegna flóðavatns.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, og leggur til við bæjarstjórn Árborgar að tillagan verði samþykkt í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og feli skipulagsfulltrúa að svara þeim umsagnaraðilum, vegna ábendinga og athugasemda sem fram hafa komið, og senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.
Svar

Til máls tóku Bragi Bjarnason. D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista og Kjartan Björnsson, D-lista.

Brynhildur Jónsdóttir, varaformaður, tók við stjórn fundarins kl. 16:50. Kjartan Björnsson, formaður, tók aftur við stjórn fundarins kl. 16:56.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur til að málinu verði frestað.

Tillaga Sigurjóns Vídalíns Guðmundssonar borin undir atkvæði, tillagan felld með 6 atkvæðum, 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista á móti 2 atkvæðum B-lista, 2 atkvæðum S-lista og 1 atkvæði D-lista, atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur.

Bragi Bjarnason, bæjarstjóri leggur til eftirfarandi tillögu að afgreiðslu:

Bæjarstjórn telur að athugasemdir Flugklúbbs Selfoss, séu á þá leið að óskir þeirra um að norðurendi flugbrautar verði aftur settur inn á Aðalskipulag eftir samtal við forsvarsmenn Flugklúbbs, þurfi nánari skoðunar við.
Varðandi umsögn Isavia, er bent á að austur/vesturbraut hafi ekki lengur sama vægi til lendinga og flugtaks og norður/suðurbrautin, enda sé hún meginbraut flugvallarins.
Vegna umsagna Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, bendir bæjarstjórn á að breytingar á gildandi aðalskipulagi, geti haft í för með sér að núgildandi rekstrarleyfi á sumum stöðum falli úr gildi við breytingu. Það sé eðli breytinga. Varðandi hvenær breytingar taki gildi, þá er það þegar tillagan verður auglýst með gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda.
Vegna umsagnar Veðurstofu Íslands vill bæjarstjórn árétta að nú þegar er í gildi deiliskipulag íbúðabyggðar í Árbakkalandi, og eru uppi áform um byggingu kjallara undir nokkur fjölbýlishús. Staðsetning þeirra húsa er syðst og í norðausturhluta svæðis. Bæjarstjórn telur að með skýrum fyrirmælum í deiliskipulagsbreytingu verði gerð krafa um öflugan öryggisbúnað sem veiti út vatni, komi til þess, og þar með takmarki hugsanlegt tjón vegna flóðavatns.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 II, í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að svara þeim umsagnaraðilum, vegna ábendinga og athugasemda sem fram hafa komið, og senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.

Tillaga um breytingu á aðalskipulagi er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 5 ákvæðum D-lista á móti 2 atkvæðum B-lista, 2 atkvæðum S-lista og 1 atkvæði D-lista, atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur.