Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 125
Annað
‹ 18
19
Fyrirspurn
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis í flokki II fyrir gistingu að Vallholti 38.
Svar

Skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal sveitarstjórn m.a. staðfesta eftirfarandi atriði: a. að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála, b. að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu. Rekstur gistiheimilis í flokki II, er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036. Byggingarfulltrúi leggst gegn útgáfu starfsleyfis.Hafnað

800 Selfoss
Landnúmer: 162890 → skrá.is
Hnitnúmer: 10062026