Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Bæjarráð nr. 157
Annað
Fyrirspurn
Erindi sem tekið var fyrir á fundi öldungaráðs Árborgar 16. janúar sl. liður 1. Samkomulag - styrkur til ráðningar tengiráðgjafa. Á fundinum lýsti Öldungaráð Árborgar áhyggjum af þeirri ákvörðun að veita ekki áframhaldandi styrk til stöðugildis tengiráðgjafa fyrri árið 2026 og taldi ráðið mikilvægt að tryggja samfellu í verkefninu gott að eldast og skoraði á ráðuneytið að endurskoða ákvörðun sína.
Lagt er til kynningar áskorun velferðarþjónustu Sveitarfélagsins Árborgar til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins um að endurskoða ákvörðun um niðurfellingu styrks til stöðugildis tengiráðgjafa Öldungaráð Árborgar lýsir áhyggjum af þeirri ákvörðun að veita ekki áframhaldandi styrk til stöðugildis tengiráðgjafa fyrir árið 2026. Það tekur tíma að aðlaga nýtt stöðugildi inn í þjónustu fyrir viðkvæma hópa og starf Tengiráðgjafa á þessum tímapunkti er viðkvæmt þar sem að þjónustan við eldra fólk er loks að festast í sessi og sérþekking Tengiráðgjafa orðin lykilþáttur í samvinnu við önnur kerfi.
Velferðarþjónustan telur mikilvægt að tryggja samfellu í verkefninu Gott að eldast og skorar á ráðuneytið að endurskoða ákvörðun sína.
Svar

Bæjarráð tekur undir áskorun velferðarþjónustu Sveitarfélagsins Árborgar til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins um að endurskoða ákvörðun um niðurfellingu styrks til stöðugildis tengiráðgjafa.

Bæjarráð skilur vel áhyggjur Öldungaráðs Árborgar þar sem starf tengiráðgjafa hefur skilað góðum árangri innan Sveitarfélagsins Árborgar m.a. í verkefnum tengd því að rjúfa félagslega einangrun eldri borgara. Samþykkt