Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 57
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 43. fundi skipulagsnefndar frá 23. apríl sl. liður 6. Fossnes og Mýrarland - Deiliskipulag Verslunar-þjónustu, Athafna- og iðnaðarsvæða
Uppfærð tillaga deiliskipulags Fossness og Mýrarlands er hér með lögð fram eftir auglýsingu. Tillagan var auglýst frá 19. september til og með 31. október 2024. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Minjastofnun, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Athugasemdir eru gerðar innan umsagnar Vegagerðar og Minjastofnunar. Vegagerðin gerði nokkrar athugasemdir og var haldinn samráðsfundur um þær breytingar sem gerðar hafa verið, m.a. með fækkun vegtenginga við Suðurlandsveg. Minjastofnun taldi að fornleifafræðing þyrfti að fá til að uppfæra í einni skýrslu þær fornleifaskráningar sem gerðar hafa verið og ná yfir mismunandi hluta deiliskipulagssvæðis. Fornleifastofnun Íslands hefur gert skýrslu FS 1011-2433, þar sem kemur fram að fundist hafi tvær nýjar fornminjar. Gerðar hafa verið ítarbreytingar frá auglýstri tillögu, m.a. færslu á lóðarmörkum Fossness 14, til norðvesturs, sameining á lóðunum Fossnes 11-13 og Fossnes 16-18. Þá er gerð ítarlegri þarfagreining vegna lóðar sem er utan um kaldavatnstank á svæði 53, m.a. með afmörkun á byggingarreit.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir fyrir sitt leyti þær umbætur og breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd telur að þær breytingar sem gerðar hafi verið á tillögunni, kalli ekki á endurauglýsingu. Nefndin mælir með að bæjarstjórn samþykki tillöguna í samræmi við 41. og 42. gr. skipulagslaga, og feli skipulagsfulltrúa að senda tillöguna Skipulagstofnunar til afgreiðslu.
Svar

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillaga að bókun:
Uppfærð tillaga deiliskipulags Fossness og Mýrarlands er hér með lögð fram eftir auglýsingu. Tillagan var auglýst frá 19. september. til og með 31. október 2024. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Minjastofnun, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Athugasemdir eru gerðar innan umsagnar Vegagerðar og Minjastofnunar. Vegagerðin gerði nokkrar athugasemdir og var haldinn samráðsfundur um þær breytingar sem gerðar hafa verið, m.a. með fækkun vegtenginga við Suðurlandsveg. Minjastofnun taldi að fornleifafræðing þyrfti að fá til að uppfæra í einni skýrslu þær fornleifaskráningar sem gerðar hafa verið og ná yfir mismunandi hluta deiliskipulagssvæðis. Fornleifastofnun Íslands hefur gert skýrslu FS 1011-2433, þar sem kemur fram að fundist hafi tvær nýjar fornminjar.
Gerðar hafa verið ítarbreytingar frá auglýstri tillögu, m.a. færslu á lóðarmörkum Fossness 14, til norðvesturs, sameining á lóðunum Fossnes 11-13 og Fossnes 16-18. Þá er gerð ítarlegri þarfagreining vegna lóðar sem er utan um kaldavatnstank á svæði 53, m.a. með afmörkun á byggingarreit.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir þær umbætur og breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni, í samræmi við 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn telur að þær breytingar sem gerðar hafi verið á tillögunni, kalli ekki á endurauglýsingu.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir tillöguna í samræmi við 41 og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda tillöguna Skipulagstofnunar til afgreiðslu.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.

Deiliskipulag
Samþykkt 14.04.2016