Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 23
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 6. fundi frístunda- og menningarnefndar frá 13. desember, liður 4. Viðbrögð við skemmdarverkum á mannvirkjum sveitarfélagsins. Borið hefur á aukningu á skemmdarverkum á íþróttamannvirkjum í eigum sveitarfélagsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir viðbrögðum frá Árborg varðandi hvort sveitarfélagið vilji beita refsi- eða bókakröfuaðgerðum í þesskonar málum. Nefndin lagði til við bæjarráð að skoða bótakröfurgerð í samskonar málum.
Svar

Bæjarráð felur mannvirkja- og umhverfissviði að koma með tillögu að verkferlum vegna skemmdarverka á mannvirkjum sveitarfélagsins.